| CARVIEW |
Skapandi tækni fyrir alla krakka!
Skemmtileg námskeið sem veita forskot til framtíðar. Skema í HR er brautryðjandi í forritunarkennslu fyrir börn á Íslandi. Undirstöðuatriði kennslunnar eru jákvæðni, myndræn framsetning og notkun á þrívíðum forritunarumhverfum til að auðvelda börnum að stíga fyrstu skrefin inn í heim tækninnar.

Tæknismiðja
Aldur: 4 - 6 ára
Næstu námskeið:
Nemendur fá að stýra vélmennum, prófa að forrita, smíða sína eigin pappírstölvu, prófa að spila Minecraft, læra á mús og lyklaborð og margt fleira. Með skemmtilegum verkefnum tileinka nemendur sér forritunarlega hugsun og efla rökhugsun og rýmisgreind.
Minecraft: Hönnun & landafræði
Aldur: 7 - 10 ára
Næstu námskeið:
Á námskeiðinu fá nemendur tækifæri til að skapa og hanna heilu landsvæðin í Minecraft. Nemendur fá að vinna á Íslandi í Minecraft sem er nákvæm eftirlíking af Íslandi.
Tæknistelpur
Aldur: 7 - 10 ára
Næstu námskeið:
Á námskeiðinu verða kennd undirstöðuatriði í forritun og tækni samþætt sjálfsmyndarvinnu. Einkunnarorð námskeiðanna eru skemmtun, samstaða og styrkur.
Markmið þessara sérhönnuðu námskeiða er að útskrifa tæknistelpur með skýra og jákvæða sjálfsmynd og brennandi áhuga á forritun og tækni.
Forskot til framtíðar
Kennsla sem byggist á rannsóknum
Skema í HR er brautryðjandi í forritunarkennslu fyrir börn á Íslandi. Undirstöðuatriði kennslunnar eru jákvæðni, myndræn framsetning og notkun á þrívíðum forritunarumhverfum til að auðvelda börnum að stíga fyrstu skrefin inn í heim tækninnar.
Sú færni sem nemendur styrkja sig í er meðal annars: Rökhugsun// sköpun // félagsfærni // teymisvinna // samskipti // betri sjálfsmynd // þrautalausnir
Mat á einingum
Flestir grunnskólar landsins meta nám hjá Skema til valeininga til jafns við íþróttir, tónlistarnám eða listnám.
Frístundastyrkur
Hægt er að nýta frístundastyrk sveitarfélaga fyrir 11 vikna námskeiðin. Hér má finna frekari upplýsingar um styrk sveitafélaga.
Vel undirbúnir þjálfarar
Krakkar sem sækja námskeið hjá Skema njóta leiðsagnar þjálfara sem hafa farið í gegnum markvissan undirbúning og þjálfun þar sem farið er yfir tæknilegar hliðar kennslunnar og aðferðafræði Skema. Í þjálfuninni er farið ítarlega yfir mikilvæg atriði er varða viðbrögð við mismunandi þörfum og hegðun.
Skipulag
Vetrarannir
Á haust- og vorönn eru haldin 11 vikna námskeið og er hver kennslustund 1 klst. og 15 mín. Námskeiðin eru haldin í Háskólanum í Reykjavík. Þau hefjast um miðjan september á haustönn og um miðjan febrúar á vorönn. Samhliða 11 vikna námskeiðunum eru haldin styttri námskeið í HR.
Sumarönn
Á sumarönn er hvert námskeið fimm dagar (frá mánudegi til föstudags) og er kennt í 3 klst. hvern dag. Sumarönnin hefst um miðjan júní og stendur fram í miðjan ágúst.
